Mikil eftirvænting ríkir fyrir opnun Basel-listamessunnar sem fer fram dagana 6. - 8. desember í Miami í Bandaríkjunum. Fílahjörð í fullri stærð er eitt af þeim verkum sem sýnd verða á listamessunni og er þegar hafin vinna við uppsetningu verksins á strönd í stórborginni.
Margt listaáhugafólk bíður spennt eftir að líta það augum en eitt yfir sig ástfangið, eða öllu heldur gratt, par gat ómögulega setið á sér eftir að hafa spottað fílana á ströndinni og klifraði upp á einn þeirra til að stunda kynlíf.
Öryggisvörður á vakt heyrði skrýtin hljóð berast frá fílahjörðinni og ákvað að kanna aðstæður, að því er fram kemur á vefsíðu Page Six.
Það sem öryggisvörðurinn sá þegar hann leit yfir fílahjörðina kom honum á óvart, en hann greip ungt par glóðvolgt í miðjum klíðum á baki eins dýrsins.
Öryggisverðinum þótti ekki tilefni til að tilkynna ástaratlot parsins til lögreglu og bað fólkið um að yfirgefa svæðið, sem það gerði.