Ástralski leikarinn Ian Smith, sem er líklega hve þekktastur fyrir að fara með hlutverk Harold Bishop í sápuóperunni Nágrönnum, greindist með banvænt krabbamein fyrr á árinu.
Smith, sem er 85 ára að aldri, sagði frá greiningunni í einlægu viðtali við 10 News First á mánudag.
„Ég fékk úrskurðinn um að ég væri með krabbamein fyrir nokkrum mánuðum síðan. Ég er með mjög ágengt lungnakrabbamein sem er ekki hægt að lækna. Ég á því skammt eftir ólifað,“ sagði leikarinn meðal annars.
Smith, sem hefur farið með hlutverk Bishop frá árinu 1987, hefur nú formlega lagt „leikaraskóna“ á hilluna, en hann kvaddi Erinsborough-stræti nú á dögunum eftir 37 ára viðveru.