„Það eru blendnar tilfinningar að kveðja þennan vinnustað“

Ragna Sigurðardóttir.
Ragna Sigurðardóttir. Ljósmynd/Úr einkasafni

Ragna Sigurðardóttir, læknir og þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, lauk sinni síðustu næturvakt á skurðsviði Landspítalans nú í morgunsárið.

Í tilefni þess deildi hún fallegri færslu á Instagram-síðu sinni.

„Lauk minni síðustu næturvakt á skurðsviði í morgun.

Það eru blendnar tilfinningar að kveðja þennan vinnustað – að minnsta kosti í bili. Ég mun sakna starfsins, og alls þess starfsfólks sem ég hef unnið með á spítalanum síðustu ár. Það hafa verið forréttindi að vinna með öllu þessu magnaða fólki sem sinnir erfiðum verkefnum, oft við krefjandi aðstæður en yfirleitt með bros á vor.

Þannig - takk. Takk fyrir samstarfið. Takk fyrir að sinna mér og mínum nánustu. Takk fyrir allt. Nú fer ég á annan vettvang og ætla að reyna hvað ég get að gera gagn. Fyrir okkar sameiginlega heilbrigðiskerfi þar sem margt er mjög vel gert - en ýmislegt má bæta,“ skrifar Ragna við færsluna. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ástvinir og maki eru þér mikilvægari en venjulega í dag. Mundu að kurteisi, auðmýkt og virðing er nauðsynleg til að njóta velvilja annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Tove Alsterdal
5
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ástvinir og maki eru þér mikilvægari en venjulega í dag. Mundu að kurteisi, auðmýkt og virðing er nauðsynleg til að njóta velvilja annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Tove Alsterdal
5
Kolbrún Valbergsdóttir