Gerði allt vitlaust með eldheitum myndum

Leikkonan er stórglæsileg.
Leikkonan er stórglæsileg. Skjáskot/Instagram

Kólumbíska leikkonan Sofía Vergara er orðin einhleyp á ný eftir árslangt ástarsamband við bæklunarskurðlækninn Justin Saliman.

Sögusagnir um ástarsamband Vergara og Saliman fóru á kreik undir lok árs í fyrra, en parið var myndað saman, hönd í hönd, í byrjun nóvember er það yfirgaf veitingastaðinn Pace í Los Angeles.

Vergara, sem er 52 ára gömul og best þekkt fyrir hlutverk sitt í bandarísku gamanþáttaröðinni Modern Family, er sögð vera orðin tilbúin að dýfa tánum í stefnumótalaugina á ný og birti í tilefni þess afar kynþokkafullar myndir af sér á Instagram á fimmtudag.

Myndirnar, sem sýna leikkonuna á sínum yngri árum, vöktu heldur betur athygli karlpeningsins, en hátt í 400.000 manns líkuðu við myndirnar á innan við sólarhring. 

Vergara skildi við eiginmann sinn til sjö ára, leikarann Joe Manganiello, í júlí í fyrra.

Ástæða skilnaðar­ins var sögð ágrein­ing­ur um barneign­ir, en leik­ar­inn, best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Big Dick Richie í Magic Mike-trílógíunni, er fimm árum yngri en Verg­ara og vill ólmur verða faðir.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu öll gylliboð, sem eiga að færa þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi. Sýndu sjálfum þér og öðrum mildi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Tove Alsterdal
5
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu öll gylliboð, sem eiga að færa þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi. Sýndu sjálfum þér og öðrum mildi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Tove Alsterdal
5
Kolbrún Valbergsdóttir