Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, virðist vera mikil jólakona.
Hún stendur nú í ströngu við að rita stjórnarsáttmála með Kristrúnu Frostadóttir, formanni Samfylkingar, og Þorgerði Katrínu, formanni Viðreisnar. Þær hafa sagt markmið sitt að mynda nýja ríkisstjórn fyrir áramót.
Á Facebook-síðu sinni greinir Inga frá því að hún sakni jólaundirbúningsins, sem flestir landsmenn sinna nú þegar jólin nálgast.
„Senn líður að jólum og ég sakna jólaundirbúningsins þrátt fyrir að hafa öðrum mikilvægum og ómetanlegum verkefnum að sinna,“ skrifar Inga.
Senn líður að jólum og ég sakna jólaundirbúningsins þrátt fyrir að hafa öðrum mikilvægum og ómetanlegum verkefnum að sinna <3
Posted by Inga Sæland on Miðvikudagur, 18. desember 2024