„Við höfum í gegnum tíðina verið með alls konar uppboð af ýmsum toga, mest þó af myndlist og listmunum, en við höfum verið að færa okkur inn á önnur svið og prófa okkur áfram með aðra gripi, eins og borðbúnað, silfur, skartgripi og þess háttar. Núna ákváðum við að prófa í fyrsta skipti að bjóða upp á það sem kalla mætti minnisverða hluti eða „memorabilia“ sem eru mjög vinsæl uppboð erlendis.“
Þetta segir Jóhann Ágúst Hansen, uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, en uppboðið sem er haldið á vefnum hófst síðasta mánudag og stendur fram á sunnudagskvöldið daginn fyrir Þorláksmessu.
Jóhann segir að ákveðið hafi verið að prófa svona uppboð þegar íslenskur safnari hafði samband við galleríið. „Allt á uppboðinu er úr einkasafni þess manns og þetta eru allt áritaðir gripir, myndir, treyjur og fleira, en hann er búinn að vera að safna mjög lengi og það er spennandi að sjá hvernig þetta gengur.“
Á uppboðinu er mikið af árituðum myndum af leikurum, tónlistarmönnum og íþróttafólki og má þar nefna m.a. Clint Eastwood, Sean Connery, Peter O'Toole, Sofiu Loren, Katharine Hepburn, Rock Hudson og marga fleiri. Þá eru margar myndir af tónlistarmönnunum Prince, John Lennon, Michael Jackson og fleirum og einnig er derhúfa árituð af Michael Jackson á uppboðinu.
Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag