Leikarinn Austin Butler og fyrirsætan Kaia Gerber, dóttir ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford og viðskiptajöfursins Rande Gerber, eru hætt saman eftir þriggja ára samband.
Slúðurmiðillinn TMZ greindi fyrstur frá tíðindunum í gærdag.
Heimildarmaður slúðurmiðilsins sem þekkir vel til parsins segir að sambandið hafa einfaldlega fjarað út í lok síðasta árs.
Gerber, sem er 23 ára, fagnaði áramótunum í faðmi fjölskyldu sinnar í Nýju-Mexíkó og var Butler, 33 ára, hvergi sjáanlegur.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gerber átt í ástarsamböndum við nokkra þekkta einstaklinga og má þar nefna fyrirsætuna Cöru Delevingne og leikarann Jacob Elordi.
Butler, sem vakti heimsathygli fyrir leik sinn í kvikmyndinni Elvis, átti í langtímasambandi við leikkonuna Vanessu Hudgens áður en hann tók saman við Gerber.