Leikkonan Jessica Alba og eiginmaður hennar, kvikmyndaframleiðandinn Cash Warren, hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir 17 ára hjónaband.
Frá þessu var greint á vefsíðu bandaríska slúðurmiðilsins TMZ í gærdag.
Ástæða skilnaðarins er óljós en heimildarmaður TMZ sagði að hjónin hefðu einfaldlega þroskast hvort í sína áttina og að ástarblossinn hefði fjarað út.
Alba og Warren kynntust á tökusetti kvikmyndarinnar Fantastic Four árið 2004 og gengu í hjónaband fjórum árum síðar.
Þau eiga saman þrjú börn, tvær dætur og einn son, á aldrinum 7 til 16 ára, Honor, Haven og Hayes.