Fjöldi fyrirmenna var saman kominn í Washington í gær til að fylgjast með Donald Trump sverja embættiseið sem 47. forseti Bandaríkjanna.
Blaðakonan Lauren Sanchez hneykslaði fjöldann á innsetningarhátíðinni. Sanchez sem er á sextugs aldri leit í fyrstu út fyrir að vera fagleg og glæsileg til fara í dragt frá Alexander McQueen og hvítri, aðhnepptri mohair-kápu.
Sanchez mætti ásamt unnusta sínum, Jeff Bezos, stofnanda Amazon, klædd kápunni með sítt, dökkt hárið sem bylgjaðist niður á bak í lágu tagli.
Þegar inn var komið fór hún úr kápunni og brá svo við að klæðnaðurinn þótti ekki viðeigandi. Innan undir klæddist hún hvítri buxnadragt, í blúndubrjóstahaldara undir samsvarandi jakka.
Djarft fataval Sanchez setti allt á fullt á samfélagsmiðlinum X í gær þar sem netverjar voru ekki par sáttir með blaðakonuna. Var fólk nokkuð harðort í garð Sanchez og lét ýmisar athugasemdir falla um klæðnaðinn, t.a.m: „Lauren Sanchez, algjörlega óviðeigandi klæðnaður í dag,“ eða „Í alvöru, brjóstahaldari sem sést greinilega. Í dag er ekki næturklúbbaviðburður. Sýndu smá klassa og reisn.“