Leikkonan Gwyneth Paltrow hefur kvatt 8.000 fm heimili sitt í Mandeville, Canyon, í Los Angeles. Eignin er í hinu fína Brentwood-hverfi og var seld fyrir 22 milljónir dollara, samkvæmt The Wall Street Journal.
Samkvæmt fréttum Wall Street á salan sér stað innan við ári eftir að söluverð eignarinnar, sem var upphaflega metin á 29,9 milljónir dollara í maí 2024, var lækkað í 24,9 milljónir dollara í október síðastliðnum.
Húsið, sem er á einni hæð, var byggt árið 1950 og endurnýjað 2009. Alls eru sex svefnherbergi í húsinu og risastórt eldhús með tvöföldu helluborði. Eitt gestahús er á lóðinni með einu svefnherbergi, skrifstofu, líkamsrækt, vínkjallara, kvikmyndasal og leikherbergi.
Há limgerði umlykja húsið og gömul tré og af því hlýst mikil kyrrð og næði.
Paltrow keypti húsið á 9,95 milljónir dollara árið 2012 ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum, söngvaranum Chris Martin. Eftir að Paltrow giftist framleiðandanum Brad Falchuk árið 2018, fluttu hann og börnin hans tvö inn á heimilið. Nú eru börn Paltrow, dóttirin Apple og sonurinn Móses, orðin fullorðin, og er hún sögð hafa viljað minnka við sig. Paltrow og Falchuk munu að öllum líkindum skipta tíma sínum á milli eignar Paltrow í Montecito í Kaliforníu og Amagansett í New York og jafnvel þriðju eignarinnar í Los Angeles.