Portrett af forsetafrúnni opinberað

Melania Trump á innsetningarhátið Donald Trump.
Melania Trump á innsetningarhátið Donald Trump. Ljósmynd/AFP

Hvíta húsið birti á mánudag fyrstu opinberu myndina af Melaniu Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, síðan eiginmaður hennar, Donald Trump, sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna í byrjun síðustu viku.

Á myndinni, sem belgíski ljósmyndarinn Régine Mahaux tók, stendur Melania við enda langborðs, klædd svartri dragt og hvítri skyrtu.

Myndin var birt á aðgangi Hvíta hússins á samfélagsmiðlinum Instagram í gær, mánudag.

Hátt í 350.000 manns hafa þegar líkað við myndina og fjölmargir ritað athugasemdir og boðið hana velkomna í Hvíta húsið á ný.

Forsetahjónin fögnuðu 20 ára brúðkaupsafmæli sínu þann 22. janúar síðastliðinn, aðeins tveimur dögum eftir að Donald tók við embætti forseta.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar