Nýjasta verk fjöllistakonunnar Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur dregur fram skoplega sýn á skómálið svokallaða sem hefur verið í hámælum síðan í gær.
Forsagan er sú að Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hringdi í skólameistara Borgarholtsskóla og jós úr skálum reiðinnar vegna týnds skópars barnabarns síns sem er af Nike-tegund.
Skóparið fannst stuttu síðar.
Myndin sýnir fréttamann spyrja Ingu hvort skórnir hafi fundist. Áður en hún svarar reynir hún að telja upp í 86 svo hún segi ekki eitthvað „fáránlegt“. En það voru m.a. tilsvör hennar þegar hún var innt eftir viðbrögðum.
Myndina er að finna á Facebook-síðu Lóu, Lóaboratoríum. Hún var sett inn rétt í þessu og hefur fengið mikil viðbrögð.