Nýjasta myndin um Bridget Jones, Bridget Jones: Mad About The Boy, var frumsýnd í gærkvöldi. Sýningin fór fram í Le Grand Rex-kvikmyndahúsinu í Parísarborg og var öllu tjaldað til, enda krökkt af stórstjörnum.
Mad About The Boy er fjórða myndin um hina seinheppnu Jones. Ber myndin sama titil og samnefnd skáldsaga eftir Helen Fielding um Bridget Jones. Í sögunni er hún orðin ekkja eftir lát Mark Darcy sem Colin Firth lék.
Reneé Zellweger, sem fer með hlutverk Jones, stillti sér upp á bleika dreglinum ásamt mótleikurum sínum, þeim Hugh Grant, Chiwetel Ejiofor og Leo Woodall, sem allir keppast um ástir Jones í myndinni.
Myndin verður heimsfrumsýnd þann 13. febrúar næstkomandi.