Sam Asghari um hjónaband þeirra Britney Spears

Britney Spears hefur aldeilis ekki átt sjö dagana sæla en …
Britney Spears hefur aldeilis ekki átt sjö dagana sæla en Sam Asghari, fyrrverandi eiginmaður hennar, segist hafa stutt hana á erfiðum tímum. VALERIE MACON / AFP

Fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Britney spears, leikarinn Sam Asghari, hefur opnað sig um örlagaríkt hjónaband þeirra. Asghari segir í hlaðvarpsþætti Kate og Oliver Hudson, Sibling Rivalry, að skert sjálfræði Spears hafi verið eitt það skrýtnasta sem hann þurfti að þola í hjónabandinu.

„Einn daginn þurfti ég að læra hvað svipting sjálfræðis þýddi og þá hugsaði ég: Bíddu erum við ekki í Ameríku. Hvað meinarðu með að einhver eldri en átján ára þurfi leyfi frá foreldrum sínum?“ sagði Asghari í hlaðvarpsþættinum.

„Þetta var það erfiðasta og skrýtnasta sem ég hef orðið vitni að í lífinu.“

Britney Spears og Sam Ashgari giftu sig í júní 2022.
Britney Spears og Sam Ashgari giftu sig í júní 2022. Skjáskot af instagram.

Asghari sagði það besta sem hann gerði fyrir Spears væri að styðja hana. 

Asghari studdi Spears heilshugar á meðan „Frelsum Britney“-hreyfingin var á fullu skriði. Á þeim tíma var barist fyrir frelsi söngkonunnar og að hún losnaði undan fjötrum föður síns, Jamie Spears, sem hún hafði verið í frá árinu 2008. Hún endurheimti sjálfræðið 2021.

Þrátt fyrir að samband Asghari og Spears hafi farið forgörðum segist Asghari ekki sjá eftir neinu.

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar