Þyngdi sig um 10 kíló fyrir hlutverk

Timothée Chalamet var meðal gesta á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í byrjun …
Timothée Chalamet var meðal gesta á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í byrjun janúar. Amy Sussman/AFP

Bandaríski leikarinn Timothée Chalamet þurfti að þyngja sig um tæp tíu kíló fyrir hlutverk sitt í Óskarstilnefndu kvikmyndinni A Complete Unknown. Chalamet fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni sem fjallar um líf og störf tónlistarmannsins og skáldsins Bob Dylan.

Chalamet ræddi um undirbúninginn fyrir hlutverkið í hlaðvarpsþættinum All Things Considered nú á dögunum.

„Ég vann vinnuna, bæði andlega og líkamlega. En eitt sem ég hef ekki minnst á, ég þyngdist um tæp tíu kíló til að leika Dylan,” sagði leikarinn. 

„Ég er grennri en Dylan, ef þú trúir því.“

Chalamet hefur fengið glimrandi dóma fyrir leik sinn í kvikmyndinni og hlaut á dögunum tilnefningu til Óskarsverðlaunanna í flokknum besti leikari í aðalhlutverki. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar