Íslenska djasssöngkonan Laufey Lín Bing Jónsdóttir sendi aðstandendum þeirra sem létust í flugslysinu í Washington á miðvikudagskvöldið samúðarkveðjur í færslu sem hún deildi í story á Instagram-síðu sinni í gærdag.
Viðbragðsaðilar hafa fundið meira en 40 lík í Potomac-ánni eftir árekstur farþegavélar og herþyrlu nærri Reagan-flugvellinum í Washington D.C. Að sögn talsmanna American Airlines-flugfélagsins voru 60 farþegar um borð og fjórir í áhöfn. Þrír bandarískir hermenn eru sagðir hafa verið í þyrlunni.
Meðal þeirra sem voru um borð í flugvélinni, sem er af gerðinni Bombardier CRJ700, voru rússnesku hjónin Jevgenia Shishkova og Vadim Naumov, sem unnu heimsmeistaratitilinn í listhlaupi á skautum árið 1999, og aðrir þekktir skautadansarar.
Flugvélin var á leið frá Wichita í Kansas þar sem íþróttamót í listdansi á skautum var haldið örfáum dögum áður.
Laufey greindi frá nöfnum 11 skautadansara og birti myndir af þeim.
„Hjarta mitt er hjá fjölskyldum og vinum þeirra sem létu lífið í D.C. í flugslysinu í gærkvöldi – mörg fórnarlambanna voru skautadansarar – hugrakkir og stórfenglegir ungir íþrótta- og listamenn.
Ég skautaði sem barn og er enn mikill aðdáandi íþróttarinnar. Ég fylgdist grannt með íþróttamótinu í Bandaríkjunum sem lauk nú á dögunum. Þetta er hrikalegt,” skrifaði Laufey við færsluna.