Fyrirsætan Kaia Gerber, dóttir ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford og viðskiptajöfursins Rande Gerber, er sögð vera komin með nýjan mann upp á arminn.
Sá heppni heitir Lewis Pullman og er leikari líkt og faðir hans, Bill Pullman, sem margir kannast við úr kvikmyndum á borð við Spaceballs, Casper, While You Were Sleeping og Independance Day.
Gerber, 23 ára, og Pullman voru mynduð á röltinu í Los Angeles á miðvikudagskvöldið og virtust njóta samveru og félagsskapar hvors annars. Fyrr um kvöldið sást til þeirra á veitingastaðnum Salazar, en þar fagnaði Pullman 32 ára afmæli sínu með Gerber og föður sínum.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gerber átt í ástarsamböndum við nokkra þekkta einstaklinga og má þar nefna fyrirsætuna Cöru Delevingne og leikarana Jacob Elordi og Austin Butler.