Rapparinn Snoop Dogg hefur fengið mikla gagnrýni fyrir að stíga á svið til heiðurs Donald Trump Bandaríkjaforseta á meðan á innsetningarhátíð hans stóð.
„Þrátt fyrir allt hatrið, ætla ég að svara með ást,“ sagði rapparinn með kannabis-rúllu í munnvikinu í myndbandi sem hann setti í Instagram-sögu sína 26. janúar.
Flutningur Snoop Dogg, sem fram fór laugardaginn 18. janúar, mun ekki hafa verið hluti af opinberri dagskrá innsetningarhátíðarinnar. Soulja Boy og Rick Ross stigu einnig á svið til heiðurs Trump, sem sjálfur var ekki viðstaddur tónleikana.
Aðdáendur rapparans hafa látið í sér heyra og m.a. sagt hann hafa misst alla virðingu og að framkoma hans hafi verið sem högg í andlitið.
Snoop Dogg hefur heldur betur tekið viðsnúning á skoðun sinni á hinum 78 ára Trump. Rapparinn á að hafa gagnrýnt Trump eftir sigur hans í kosningunum 2016.
Til að undirstrika andstyggð sína á forsetanum, þá, gaf hann út lagið Make America Crip Again, árið 2018.
Í viðtali við The Sunday Times fyrr í janúar sagði rapparinn hins vegar: „Hann hefur ekki gert neitt á minn hlut, hann hefur aðeins gert frábæra hluti fyrir mig.“ Og vísaði Snoop Dogg til þess að Trump hefði náðað góðan vin sinn, Michael Harris, árið 2021. Þá hafði Harris setið inni á dauðadeild síðan 1988 fyrir morðtilraun og eiturlyfjasmygl.