Sílenski leikarinn Pedro Pascal og bandaríska leikkonan Jennifer Aniston eru sögð vera að stinga saman nefjum þessa dagana, en þau sáust yfirgefa veitingastaðinn Tower Bar á Sunset Tower-hótelinu í Hollywood á laugardagskvöldið.
Parið reyndi eftir bestu getu að láta lítið fyrir sér fara en að sögn viðstaddra þá spjölluðu Pascal og Aniston langt fram á kvöld og virtust njóta félagsskapar hvort annars.
Pascal skaust upp á stjörnuhimininn árið 2015 í þáttaröðinni Narcos og hefur leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru síðan. Hann hefur haldið einkalífi sínu úr sviðsljósinu og því er lítið vitað um sambandssögu leikarans, en orðrómur um kynhneigð Pascal hefur verið á kreiki síðustu ár.
Aniston varð heimsfræg á 10. áratugnum þegar hún fór með hlutverk hinnar stórskemmtilegu Rachel Green í gamanþáttaröðinni Friends. Leikkonan hefur um árabil verið ein eftirsóttasta leikkonan í Hollywood og farið með ótal burðarhlutverk í bæði kvikmyndum og þáttaröðum.
Aniston er tvískilin. Hún var gift leikaranum Brad Pitt á árunum 2000 til 2005 og Justin Theroux á árunum 2015 til 2017.