Svala Björgvins: Weirdo þegar kemur að fötum

Svala Björgvins í einni af sínum uppáhaldsflíkum, fölbleikum fjaðrajakka
Svala Björgvins í einni af sínum uppáhaldsflíkum, fölbleikum fjaðrajakka

Svala Björgvins er ekki aðeins þekkt fyrir tónlistina heldur einnig fyrir glæsilegan og ögrandi fatastíl. Hún hefur sterkar skoðanir á fötunum sem hún klæðist og sækir innblástur víða, meðal annars frá vintage-búðum og flóamörkuðum, en finnst lykilatriði að fötin séu þægileg.

Svala er eini þjálfarinn í The Voice sem kaus að hafa ekki sérstakan stílista. „Ég hef verið minn eigin stílisti í mörg ár,“ segir Svala sem segir sterkar skoðanir hennar á klæðnaði gera öðrum erfitt fyrir að finna föt á hana. Svala segir þetta ekkert persónulegt gegn þeim mörgu stílistum sem hún þekkir og eru færir í sinni vinnu, „ég er bara soddan „weirdo“ þegar það kemur að fötunum sem ég vil klæðast.“

Föt úr öllum áttum

Svala segir stílinn í útliti hennar í The Voice vera mjög áþekkan hennar daglega stíl. „Auðvitað er maður með smá extra fínheit í þættinum varðandi klæðnað, en fyrir mér er ég frekar plain miðað við hvernig ég er klædd þegar ég er sjálf á sviði að syngja,“ en Svala er þekkt fyrir skrautlegt en glæsilegt útlit þegar hún kemur fram. 

Fötin hennar Svölu koma úr öllum áttum, nýtt, gamalt, dýrt og ódýrt, og dressið í The Voice er enginn undantekning. „Ég er í dýrum samfesting með ódýrt vintage belti frá 1980 við, í ódýrum jakka og með rándýra eyrnalokka. Ég er voða hrifin af svörtu og gylltu, kremlituðu og hvítu og nude litum þessa dagana og fötin sem ég klæðist í The Voice eru svolítið í þeim litum.“

Aðspurð hvort að hún muni skarta flíkum úr eigin línu í The Voice er svarið já. „Ég var í tuxedo jakka úr línunni minni um daginn í þættinum,“ segir Svala, sem segir jafnframt að enn fleiri flíkum úr línunni muni bregða fyrir í næstu þáttum.

Alltaf uppáklædd með nóg úr að velja

„Mér finnst gaman að klæða mig upp og ég geri það bara fyrir sjálfa mig og engan annan,“ segir Svala sem nýtur þess að líta vel út. „Ég er frekar uppáklædd dagsdaglega. Einar maðurinn minn stríðir mér oft þegar við erum að fara útí matvörubúð að versla, þá segir hann: „Bíddu ertu að fara á verðlaunaafhendingu eða??““

Það er úr nógu að velja þegar Svala tekur sig til. „Ég á crazy mikið af fötum og er með heilt herbergi sem er bara fataherbergi, troðfullt af fötum, og svo huge fataskáp sem er líka stútfullur. Ég er svo með geymslu þar sem ég geymi líka föt og skó og skart.“

Svala á nýja uppáhalds flík í hverri viku. „Akkúrat núna þá elska ég svartar extra útvíðar buxur sem ég keypti mér í Kaupmannahöfn í sumar þegar við vorum að spila þar á Gaypride. Svo var ég að kaupa mér fölbleikan fjaðrajakka.“

Innblástur frá bloggum, gömlum tískusýningum og flóamörkuðum

Svala sækir innblástur víða. Hún fylgist með streetstyle bloggum, skoðar gömul tískublöð og horfir á tískusýningar frá 1970-1980 á YouTube. „Ég dýrka ástralska stílistann og fatahönnuðinn Catherine Baba. Hún er ein best klædda konan í heiminum í dag að mínu mati. Daphne Guinnes er líka í miklu uppáhaldi og svo finnst mér lúmskt gaman að fylgjast með Kylie Jenner. Hún er farin að vera mega smart nýlega.“

Svala segist jafnframt fá innblástur í vintage-búðum og flóamörkuðum, en það er mikið úrval af þeim þar sem hún býr í Los Angeles.

Meika ekki óþægileg föt

 „Ég get ekki lýst mínum stíl,“ segir Svala „Ég fer bara í föt sem ég fíla og mér finnst klæða mig vel hverju sinni. Er ekki mikið að pæla í hvað er í tísku og ekki í tísku. Svo verða föt að vera þægileg, það er gífurlega mikilvægt. Ég meika ekki að vera í fötum sem eru óþægileg.“

Á instagram reikningi Svölu má sjá fleiri myndir af fötum, tónlistarlífinu og þjálfarastörfum í The Voice.

Svala í mynstruðum 80' buxum með eyrnalokka í anda sama …
Svala í mynstruðum 80' buxum með eyrnalokka í anda sama tímabils
Hljómsveitin Steed Lord sem Svala fer fyrir
Hljómsveitin Steed Lord sem Svala fer fyrir
Svala í prentuðum bol og víðum hvítum buxum
Svala í prentuðum bol og víðum hvítum buxum
Hér skartar Svala fötum úr línunni sinni, Kali
Hér skartar Svala fötum úr línunni sinni, Kali
Svala Björgvins á sviði með hljómsveitinni sinni, Steed Lord
Svala Björgvins á sviði með hljómsveitinni sinni, Steed Lord
Svala á æfingum í The Voice
Svala á æfingum í The Voice
Svala í rauðum jakka með glæsilega skartgripi
Svala í rauðum jakka með glæsilega skartgripi
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar