Iva Marín Adrichem er 18 ára gamall nemandi við MH og eini blindi keppandinn í sjónvarpsþáttunum The Voice Ísland. Hún segir upplifunina í áheyrnarprufunni líklega ekki hafa verið mikið öðruvísi hjá henni en hjá öðrum þátttakendum.
„Það er massív þjálfun hjá söngvurum að halda augunum opnum til halda tengingu, og ég held að það hafi verið rosa kostur að vita ekki hvort að einhver hafi snúið sér við eða ekki.“
Iva hafði efasemdir um þátttökuna í The Voice Ísland. „Svona þættir snúast stundum pínu um to tell a sad story og ég var hrædd um að vera gerð að major fórnarlambi. Ég hef séð blindan keppanda í svona þætti og það hræðilegt. Ég lagði fram beiðni um að vera ekki „blindi keppandinn“ og framleiðsluteymið hjá Sagafilm var sammála því að slíkt myndi ekki virka á Íslandi. Það yrði bara kjánalegt.“
Iva hafði hálft í hvoru búist við því að komast ekki áfram, en það var vinkona hennar sem skráði hana í þáttinn. „Þrátt fyrir efasemdirnar langaði mig að taka þátt þar sem ég sá tækifæri til að næla mér í þjálfun í sviðsframkomu og tjáningu. Það er nokkuð sem mig skortir og ég á erfitt með að ná tökum á, m.a. sökum þess að ég sé ekki neitt og geri mér ekki grein fyrir í hverju tjáning felst.“
Iva var ekki nógu ánægð með frammistöðu sína í blindprufum þáttanna, en hún komst ekki áfram. „Stressið náði tökum á mér og það heyrðist greinilega í röddinni. Ég negldi ekki lagið eins og ég hafði verið að gera á æfingum. En "c'est la vie"!“
Þrátt fyrir að vera ekki nema 18 ára gömul er Iva alls ekki ókunn sviðinu. Hún hefur tekið þátt í tveimur uppfærslum hjá Íslensku Óperunni, tók þátt á söngkeppni Samfés 2014 og söng fyrir hönd MH í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2015, en atriðið má sjá hér að neðan.
Iva tekur virkan þátt í starfi Tabú og hefur sterkar skoðanir á réttindabaráttu fatlaðra. „Það er mikilvægt að réttindabarátta gangi ekki út á fórnarlambsvæðingu, en því miður virka reynslusögur sem oft á tíðum spila inn á tilfinningar best þegar höfða á til almennings. Mér finnst að réttindabarátta sé ekki unnin öðruvísi en að fólk haldi mannlegri reisn. Það að spila inn á tilfinningaþrungnar reynslusögur er virkilega fín lína, en stundum verður maður að lúffa fyrir þessu þar sem tilfinninga-taktíkin nær einna best til eyrna almennings. Ég reyni sjálf að vara mig á neikvæðninni og reyni að gefa minni réttindabaráttu sem einstaklingur,eins jákvæðan vinkil og mögulegt er.“
Iva segir starfið í Tabú hafa gefið henni margt. „Ég hefði aldrei orðið eins víðsýn og hefði ekki verið í þessari baráttu ef ég væri ekki með fötlun, svo þetta eru viss forréttindi.“
Iva hefur stundað nám í klassískum söng í Tónlistarskólanum í Garðabæ síðan hún var þrettán ára gömul. „Klassískur grunnur er náttúrulega mjög næs að hafa, svo vil ég bara gera sem mest og fjölbreyttast, en reyna að skara framúr í klassíkinni, Allavega núna, svo getum við séð til eftir nokkur ár… sérstaklega eftir Voice reynsluna þá hef ég svolítið misst öryggið í poppinu.“
Iva stefnir á að ljúka stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð um jólin og sér fyrir sér að eyða vorönninni í að mestu í tónlist. „Ég er með ýmislegt efni í höndunum sem væri synd að vinna ekki með. Ég kemst hvort eð er ekki í neinn háskóla á vorönn svo ég þarf að nýta tímann einhvernvegin!“
Það er klassískur söngur sem á hug og hjarta Ivu.