Kynlegur stormur í aðsigi

Síðdegisstormurinn á kortinu.
Síðdegisstormurinn á kortinu. Úr myndbandinu.

Bandarískur veðurfréttamaður er nú aðhlátursefni á veraldarvefnum en stormur á veðurkorti hans um daginn líktist kynfærum karla mjög.

Útsendingin var frá Texas en þar varaði hinn grunlausi Nick Kraynok við stormi sem var í aðsigi.

Hann áttaði sig ekki á lögun stormsins eða hélt andlitinu mjög vel er hann lýsti storminum án þess að hika.

Myndband af veðurfréttinni er orðið mjög vinsælt á YouTube og má sjá það hér fyrir neðan og bentu spekingar á að stormurinn myndi líklega minnka er kólna tæki.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar