Pítsusendill með 3,5 milljónir í tímakaup

„Viljum ráða pítsusendil. Hann þarf að vera orðinn 18 ára en engrar reynslu er krafist. Útvegum einkennisbúning. Laun: 3,5 milljónir króna á tímann."

Veitingahúsakeðjan Domino's Pizza í Japan heldur um þessar mundir upp á það, að aldarfjórðungur er frá því fyrirtækið hóf starfsemi sína í landinu. Ætlar fyrirtækið meðal annars að ráða einn heppinn einstakling í klukkustund, láta hann aka út pítsum og greiða honum 2,5 milljónir jena fyrir. 

Talsmaður fyrirtækisins neitaði að veita Reutersfréttastofunni frekari upplýsingar um málið fyrr en 10. nóvember en á vef Domino's í Japan segir, að þeir sem vilji fá starfið verði að senda umsókn. Þeir sem fyrirtækinu lítist vel á verði kallaðir í viðtal.

Venjuleg laun fyrir hlutastörf í Japan eru rétt undir 1000 jenum á tímann, um 1400 krónur. En margir sem hafa tjáð sig um fréttir af þessu uppátæki Domino's benda á, að það sé í raun ódýrt að greiða einum pítsusendli 2,5 milljónir jena fyrir klukkutíma vinnu í ljósi þess hve fyrirtækið fái mikla athygli.

Domino's í Japan ætlar einnig, að bjóða þeim, sem fæddust 30. september í ár, ókeypis pítsu á afmælisdegi sínum þar til þeir verða 25 ára en fyrirtækið hóf starfsemi í Japan 30. september fyrir 25 árum.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar