Mike Babick, 69 ára Bandaríkjamaður, hefur lagt mikið á sig til að skreyta hús sitt fyrir jólin og skreytingarnar eru orðnar svo vinsælar að mörgum nágrönnum hans þykir nóg um og hafa kvartað til yfirvalda.
„Þetta er risastór jólagjöf til allra – frá mér,“ segir Babick sem vinnur sleitulaust í mánuð við að setja upp jólaljós og meira en þúsund styttur og myndir á húsið í einu úthverfa Kansasborgar.
Um 30 nágrannar hans hafa þó afþakkað þessa jólagjöf og kvartað undan henni við lögregluna. Þeir segja að jólahúsið sé orðið alltof vinsælt, enda bendir talning lögreglunnar á bílum á götunni til þess að um 250.000 manns skoði húsið fyrir hver jól.