Tekinn af sömu löggunni - hinum megin á hnettinum

Reuters

Maður sem tekinn var fyrir of hraðan akstur í London fyrir tveimur árum hafði ekki búið lengi á Nýja Sjálandi en sami lögreglumaðurinn stöðvaði hann fyrir hraðaakstur.

Lögreglumaðurinn Andy Flitton sektaði landa sinn í London fyrir tveimur árum og flutti skömmu síðar hinum megin á hnöttinn eða til Nýja Sjálands. Nú í september brá honum heldur í brún er hann stoppaði sama náungann fyrir hraðaakstur.

Flitton bar kennsl á manninn á meðan hann skrifaði sektarmiðann. „Hann spurði mig hvort ég hefði unnið í London og ég játti því,“ segir Flitton. „Hann spurði hvort ég hefði verið við hraðamælinga rá A5 hraðbrautinni og ég sagði það einnig rétt.“ Kom  þá í ljós að leiðir þeirra höfðu legið saman tveimur árum áður. Seinheppni ökumaðurinn hafði þá nýverið flutt til Nýja Sjáland og ekki dvalið þær nema í tvær vikur er Flitton sektaði hann á nýjan leik.

„Það hlýtur að vera eitthvað óvenjulegt samband á milli okkar,“ segir Flitton. „Maðurinn hafði aðeins brotið lögin tvisvar á ævinni og í bæði skiptin varð ég vitni að því.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar