Fjárfestingar Sjóðs 9 í fullu samræmi við lög

Sjóður 9 | 2. október 2008

Í tilkynningu frá Glitni segir að fjárfestingar Sjóðs 9 séu í fullu samræmi við lög og reglur sem gilda um sjóðinn og innan vikmarka þeirrar stefnu sem hann setur sér.  Sjóðurinn sé undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins eins og aðrir verðbréfa-og fjárfestingasjóðir og sendir jafnframt inn mánaðarlegar skýrslur til Seðlabanka Íslands.

mbl.is/Friðrik

"Mikil umræða hefur skapast um peningamarkaðssjóði í kjölfar þess að Glitnir banki ákvað að lágmarka tap sjóðfélaga í Sjóði 9 eftir miklar sviptingar á fjármálamarkaði. Vegna þessarar umræðu vill Glitnir árétta að fjárfestingar Sjóðs 9 voru og eru í fullu samræmi við lög og reglur sem gilda um sjóðinn og innan vikmarka þeirrar stefnu sem hann setur sér. Sjóðstjórar hafa heimildir til fjárfestinga innan fjárfestingarstefnu sem stjórn hefur markað.  Aldrei er farið út fyrir þá stefnu sem útboðslýsing sjóðsins heimilar. Sjóður 9 er undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins eins og aðrir verðbréfa-og fjárfestingasjóðir og sendir jafnframt inn mánaðarlegar skýrslur til Seðlabanka Íslands.

Því er ekki að neita að þeir atburðir sem hófust í byrjun viku hafa haft tímabundin áhrif. Til að vernda hagsmuni sjóðsfélaga keypti Glitnir banki skuldabréf Stoða út úr sjóðnum og lágmarkaði þannig tjón sjóðfélaga. Ávöxtun sjóðsins á síðastliðið eitt ár er 7,74% og síðastliðin 2 ár 11,1% á ársgrundvelli. Gengi Sjóðs 9 hefur hækkað um  23,9% síðustu tvö ár," segir í tilkynningu frá Glitni.

mbl.is