Meira en ár síðan rannsókn hófst

Húsleit hjá Sjóvá ofl | 8. júlí 2009

Meira en ár síðan rannsókn hófst

Fjármálaeftirlitið hefur verið með málefni tengd Sjóvá til skoðunar frá fyrri hluta ársins 2008.  Í lok árs skipaði Fjármálaeftirlitið  sérstakan endurskoðanda til að fara yfir málefni félagsins. Skýrsla hans, auk athugana FME, leiddi til þess að tilteknum þáttum er vörðuðu starfsemi Sjóvár og annarra  aðila var vísað til sérstaks saksóknara. Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins.

Meira en ár síðan rannsókn hófst

Húsleit hjá Sjóvá ofl | 8. júlí 2009

Frá húsleit í gær
Frá húsleit í gær RÚV

Fjármálaeftirlitið hefur verið með málefni tengd Sjóvá til skoðunar frá fyrri hluta ársins 2008.  Í lok árs skipaði Fjármálaeftirlitið  sérstakan endurskoðanda til að fara yfir málefni félagsins. Skýrsla hans, auk athugana FME, leiddi til þess að tilteknum þáttum er vörðuðu starfsemi Sjóvár og annarra  aðila var vísað til sérstaks saksóknara. Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins.

Fjármálaeftirlitið hefur verið með málefni tengd Sjóvá til skoðunar frá fyrri hluta ársins 2008.  Í lok árs skipaði Fjármálaeftirlitið  sérstakan endurskoðanda til að fara yfir málefni félagsins. Skýrsla hans, auk athugana FME, leiddi til þess að tilteknum þáttum er vörðuðu starfsemi Sjóvár og annarra  aðila var vísað til sérstaks saksóknara. Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins.

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um mál sem Fjármálaeftirlitið hafði til rannsóknar og sneri m.a. að Sjóvá-Almennum tryggingum hf. telur Fjármálaeftirlitið rétt að fram komi að málinu var vísað til embættis sérstaks saksóknara samkvæmt ákvörðun stjórnar Fjármálaeftirlitsins þann 25. mars sl.

Aðdragandi málsins er sá að Fjármálaeftirlitið hefur verið með ákveðin málefni tengd Sjóvá-Almennum tryggingum hf. til skoðunar frá fyrri hluta árs 2008. Þann 15. desember sl. skipaði Fjármálaeftirlitið sérstakan endurskoðanda til að fara yfir málefni félagsins og skilaði hann skýrslu til Fjármálaeftirlitsins í lok janúar sl.

Skýrsla hans, auk athugana Fjármálaeftirlitsins, leiddi til þess að Fjármálaeftirlitið vísaði tilteknum þáttum er vörðuðu starfsemi Sjóvár-Almennra trygginga hf. og annarra aðila til sérstaks saksóknara.

Eins og kunnugt er gerði embætti sérstaks saksóknara húsleitir á nokkrum stöðum í gær. Með vísan til tilkynningar embættis sérstaks saksóknara þá tóku um 25 manns þátt í umfangsmiklum aðgerðum. Starfsmenn frá Fjármálaeftirlitinu voru þeirra á meðal, en um var að ræða þátt í góðri samvinnu á milli embættis sérstaks saksóknara og Fjármálaeftirlitsins," að því er segir á vef FME.

mbl.is