Hefur alltaf verið þung

Stjörnuþjálfun | 20. október 2011

Hefur alltaf verið þung

Eva Margrét Kristinsdóttir er í skýjunum með Stjörnuþjálfun. Hún er 10 sm grennri í mittið en fyrir átak.

Hefur alltaf verið þung

Stjörnuþjálfun | 20. október 2011

Eva Margrét Kristinsdóttir.
Eva Margrét Kristinsdóttir. Eggert Jóhannesson

Eva Margrét Kristinsdóttir er í skýjunum með Stjörnuþjálfun. Hún er 10 sm grennri í mittið en fyrir átak.

Eva Margrét Kristinsdóttir er í skýjunum með Stjörnuþjálfun. Hún er 10 sm grennri í mittið en fyrir átak.

„Nú erum við komnar inn í sjöttu vikuna og námskeiðið sem sagt hálfnað. Æfingarnar verða bara skemmtilegri og skemmtilegri vegna þess að formið verður betra með hverjum deginum sem líður. Ég finn fyrir auknum styrk, ég er farin að geta fleiri armbeygjur, lyfta þyngri lóðum, hlaupa hraðar, hjóla hraðar og hoppa hærra. Það er svo margt gott sem fylgir því að vera í góðu formi og borða holla og næringarríka fæðu. Aukin vellíðan, betri svefn og meiri orka til að takast á við verkefni dagsins. Þetta hljómar allt ótrúlega klisjukennt en þetta er bara svona ótrúlega einfalt.“

Eva Margrét hefur lést um 2,5 kíló í átakinu.

„Þessi kíló segja bara hálfa söguna því á sama tíma hef ég misst 10 cm í mittinu, 10 cm á mjöðmunum og 1-2 cm á höndum og fótum. Það sem best er ég hef misst 2,5% í fitu. Þessar tölur segja svo miklu meira en kílóin einhvern tímann.“

Hún segir að hóptímarnir séu frábærir.

„Ég ákvað að vera með í þessu átaki til þess að komast aftur í gott form. Ég var búin að slaka á í ræktinni í eitt ár og þurfti spark í rassinn. Það er svo gott að mæta í ræktina og vita að maður er að fara að hitta skemmtilegan hóp undir öruggri leiðsögn þjálfara. Ég mæli eindregið með því að finna sér eitthvað námskeið eða hóptíma sem að maður hefur gaman að því að mæta í. Félagsskapurinn skiptir svo miklu máli.“

Hún segir að pundið sé þungt í henni.

„Ég hef alltaf verið þung og mun alltaf vera óhagstæð í svokölluðum BMI stuðli eða hvað sem þetta nú heitir allt saman. Ég hef oft heyrt setningar eins og „það er þungt í þér pundið“, „þú ert náttúrulega svo stórbeinótt“, „þú ert svo hraust“. Með árunum hef ég lært að líta á þetta sem eitthvað jákvætt. Já, ég er stór, ég er sterk og ég er hraust og er á fullri ferð að komast í mitt besta form. Þetta snýst ekki um að steypa alla í sama mótið. Þetta snýst um að vera besta útgáfan af okkur sjálfum hvort sem það er í vinnunni, skólanum, einkalífinu eða þegar kemur að hreyfingu. Mín markmið voru að geta hlaupið hratt, hoppað hátt, gert fleiri armbeygjur, gengið hratt upp á fjöll og borið þungan farangur á bakinu. Ég er á góðri leið og ætla ekki að hætta núna, þetta er einfaldlega of skemmtilegt.“

HÉR er hægt að lesa blogg Evu Margrétar.

Eva Margrét Kristinsdóttir.
Eva Margrét Kristinsdóttir. mbl.is/Golli
mbl.is