8 kílóum léttari eftir sex vikna púl

Stjörnuþjálfun | 26. október 2011

8 kílóum léttari eftir sex vikna púl

Dagmar Ásmundsdóttir í Stjörnuþjálfun er alsæl með árangurinn. Hún hefði ekki trúað því að leikfimisæfingar og hollur matur gætu gert svona mikið. Nú er átakið rúmlega hálfnað.

8 kílóum léttari eftir sex vikna púl

Stjörnuþjálfun | 26. október 2011

Dagmar Ásmundsdóttir.
Dagmar Ásmundsdóttir. Eggert Jóhannesson

Dagmar Ásmundsdóttir í Stjörnuþjálfun er alsæl með árangurinn. Hún hefði ekki trúað því að leikfimisæfingar og hollur matur gætu gert svona mikið. Nú er átakið rúmlega hálfnað.

Dagmar Ásmundsdóttir í Stjörnuþjálfun er alsæl með árangurinn. Hún hefði ekki trúað því að leikfimisæfingar og hollur matur gætu gert svona mikið. Nú er átakið rúmlega hálfnað.

„Ég hefði aldrei trúað því ef einhver hefði sagt þetta við mig: „Prófaðu að æfa 4-5 sinnum í viku, borðaðu holt og það 5 sinnum á dag og þú munt sjá svaka breytingu eftir 6 vikur.“ En hér er ég, búin að prófa það og ÞAÐ VIRKAR,“ segir Dagmar á bloggi sínu. 

„Eftir þessar 6 vikur er ég búin að missa 8 kíló og bæta mig á svo marga vegu. Þröngu fötin mín eru loksins orðin þægileg en brókin orðin allt of stór. Ég er farin að draga ýmislegt fram úr skápnum sem ekki hefur passað lengi, en held samt að Geir þurfi að fara með mig í „shopping spree“ þegar þessu lýkur.“

Dagmar ætlar ekki að hætta í leikfimi þegar þessar sex vikur eru liðnar.

„Ég er strax byrjuð að spá hvað ég eigi að gera eftir 6 vikur því að ég vil að sjálfsögðu halda áfram. Ég veit þetta hljómar ekki eins og „words that are coming out of my mouth“ en ... Þetta er algjör lífstílsbreyting hjá mér ég ætla aldrei aftur í sama farið og hlakka til að takast á við þetta sjálf ég er miklu sterkari en ég hélt.“

HÉR er hægt að lesa bloggið hennar.

Dagmar Ásmundsdóttir.
Dagmar Ásmundsdóttir. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is