Settu þér markmið og náðu þeim

Stjörnuþjálfun | 8. nóvember 2011

Settu þér markmið og náðu þeim

Hin Stjörnuþjálfaða Eva Margrét Kristinsdóttir gerir fátt annað þessa dagana en að ná markmiðum sínum.

Settu þér markmið og náðu þeim

Stjörnuþjálfun | 8. nóvember 2011

Eva Margrét Kristinsdóttir.
Eva Margrét Kristinsdóttir. Eggert Jóhannesson

Hin Stjörnuþjálfaða Eva Margrét Kristinsdóttir gerir fátt annað þessa dagana en að ná markmiðum sínum.

Hin Stjörnuþjálfaða Eva Margrét Kristinsdóttir gerir fátt annað þessa dagana en að ná markmiðum sínum.

„Að setja heilsuna í fyrsta sæti er ekki spretthlaup. Þetta er langhlaup sem stendur yfir alla ævi. Þetta er skemmtilegt og krefjandi verkefni. Við fáum bara einn líkama og það er okkar að hugsa vel um hann.

Áður en námskeiðið hjá Önnu hófst þá setti ég mér fullt af markmiðum, sum stór en önnur minni. Það er ótrúlegt hvað það gefur manni mikinn auka kraft að ná markmiðunum sínum. Markmiðin sem ég setti mér í byrjun eru að detta í hús eitt af öðru. Það er ótrúlega skemmtilegt að setjast niður og setja sér ný og enn hærri markmið, nú þegar það eru rúmlega 4 vikur eftir af námskeiðinu,“ segir Eva Margrét á bloggi sínu.

Það hefur gengið eins og í sögu hjá henni að ná markmiðum sínum.

„Ég er búin að ná markmiðunum mínum í hlaupunum, en þá er það eina í stöðunni að setja sér hærri markmið. Ég er búin að þyngja lóðin hjá mér nokkuð og finn hvernig styrkurinn verður meiri í hverri viku. Meistaramánuðurinn gengur vel, sum markmið sem ég setti mér ganga vel en önnur ekki eins vel. En þetta er allt á réttri leið.

Ég mæli hiklaust með því að setja sér markmið því það er svo yndisleg tilfinning að ná markmiðunum sínum.“

HÉR er hægt að lesa blogg Evu Margrétar.

Eva Margrét Kristinsdóttir.
Eva Margrét Kristinsdóttir. mbl.is/Golli
mbl.is