Fyrirsætan Naomi Campbell kom öllum skemmtilega á óvart þegar hún gekk tískupallinn fyrir Haute Couture-línu Versace um helgina.

Hin 43 ára Campbell opnaði Versace-sýninguna á tískuvikunni í París á sunnudaginn og leit glæsilega út í stuttum svörtum kjól og blúndubrjóstahaldara.
„Ég er svo glöð með að vera hérna í París í kvöld til að ganga fyrir Donatellu Versace. Við höfum þekkst í 25 ár,“ sagði fyrirsætan.
Campbell hefur ekki gengið í Versace-tískusýningu í 15 ár en henni var fagnað innilega af áhorfendum þegar hún birtist á sýningarpallinum um helgina.
„Ég þurfti fágaða konu með sterkan persónuleika til að opna þessa sýningu, aðeins Naomi Campbell kom til greina,“ sagði Donatella Versace.
Leikkonurnar Uma Thurman og Emma Roberts voru meðal áhorfenda á fremsta bekk.