Ásdís
<a href="http://gurmandisir.blogspot.com/2013/03/blomkalssupa.html" title="Ásdís">matarbloggari á Gúrmandísir eldaði á dögunum gómsæta blómkálssúpu </a>sem smakkaðist guðdómlega að hennar sögn. Góðar súpur eru alltaf viðeigandi og því mælum við með því að þið prófið þessa.
<b><br/></b> <b>Hráefni:</b>ólífuolía
1/2 laukur
1 blaðlaukur
2 hvítlauksrif
lítill blómkálshaus eða hálfur stór blómkálshaus
1 meðalstór sellerírót
1L af grænmetissoði, jafnvel örlítið meira
salt og pipar
fersk basilíka eða kóríander
kasjúhnetur
<b><br/></b> <em>Aðferð:</em> <em><br/></em>Saxið lauk, hvítlauk og blaðlauk. Skerið blómkál í bita ásamt sellerírót.
Hitið dálítið af ólífuolíu í potti á meðalhita. Svitið lauk og blaðlauk í 2-3 mínútur og bætið svo hvítlauk, blómkáli og sellerírót út í. Saltið aðeins ef þið viljið. Hrærið í og leyfið þessu að mýkjast aðeins. Bætið þá grænmetissoðinu út í pottinn, hækkið aðeins hitann og leyfið suðunni að koma upp. Lækkið þá hitann í meðalhita og leyfið súpunni að malla í 10-15 mínútur. Slökkvið undir og leyfið súpunni að kólna í nokkrar mínútur áður en hún er blönduð með töfrasprota.
Setjið saxaðar kryddjurtir og kasjúhnetur ofan á súpuna áður en hún er borin fram. Ein rönd af ólífuolíu og smá nýmulinn svartur pipar og þið eruð klár!