Stofna fyrirtæki um mynd með Gosling

Ryan Gosling | 5. september 2013

Stofna fyrirtæki um mynd með Gosling

Kvikmyndafyrirtækið RVK Studios, sem er að hluta í eigu Baltasars Kormáks, hefur stofnað dótturfélag sem nefnist HTMC ehf. í tengslum við nýja mynd sem Ryan Gosling leikur í.

Stofna fyrirtæki um mynd með Gosling

Ryan Gosling | 5. september 2013

Ryan Gosling
Ryan Gosling AFP

Kvikmyndafyrirtækið RVK Studios, sem er að hluta í eigu Baltasars Kormáks, hefur stofnað dótturfélag sem nefnist HTMC ehf. í tengslum við nýja mynd sem Ryan Gosling leikur í.

Kvikmyndafyrirtækið RVK Studios, sem er að hluta í eigu Baltasars Kormáks, hefur stofnað dótturfélag sem nefnist HTMC ehf. í tengslum við nýja mynd sem Ryan Gosling leikur í.

Nefnist myndin How to catch a monster, samkvæmt frétt á vef News of Iceland. Gosling hefur haldið til á Íslandi meira og minna síðan um miðjan júlí.

Gosling vinnur að vinnslu myndarinnar ásamt Valdísi Óskarsdóttur og samstarfsfólki. Stór hluti tæknivinnunnar fer fram á Íslandi hjá fyrirtækinu Framestone en Baltasar og Daði Einarsson keyptu íslenska hluta fyrirtækisins síðasta sumar, samkvæmt frétt News of Iceland.

Gosling, sem dvelur hér ásamt unnustu sinni Evu Mendes, á að hafa komið sér vel fyrir í Reykjavík. Hann æfir hjá Mjölni á meðan Baðhúsið varð fyrir valinu hjá Mendes. Heimildir News of Iceland herma að Gosling verði hér á landi þangað til um miðjan september.

mbl.is