Hollande staðfestir sambandsslit

Hollande og ástarmálin | 25. janúar 2014

Hollande staðfestir sambandsslit

François Hollande, forseti Frakklands, hefur staðfest við AFP-fréttastofuna, að hann hafi slitið sambandi sínu við sambýliskonu sína, Valerie Trierweiler, í kjölfar ástarsambands við unga leikkonu, sem er 20 árum yngri en hann 

Hollande sagði við AFP: „Ég vil taka það fram að ég hef slitið sambandi mínu við Valerie Trierweiler.“

Fullyrt var fyrr í dag að tilkynning þessa efnis væri væntanleg en um miðjan dag kom yfirlýsing frá forsetaskrifstofunni þar fram kom að ekkert væri hæft í þeim fréttum.

Annað hefur nú komið á daginn. Hollande og Trierweiler eru skilin.

Tímaritið Closer birti fyrr í mánuðinum frétt um að Hollande héldi við leikkonuna Julie Gayet, og var Trierweiler, sambýliskona hans, lögð inn á sjúkrahús sama dag. Hollande hefur ekki neitað því að eiga í ástarsambandi við Gayet og hefur viðurkennt opinberlega að það hafi verið erfiðar stundir í sambúð þeirra Trierweiler.

Frá því Trierweiler var útskrifuð af sjúkrahúsi hefur hún dvalið á setri forsetaembættisins  La Lanterne, skammt frá Versölum.

mbl.is