Ástkonan unga og hæfileikaríka

Hollande og ástarmálin | 26. janúar 2014

Ástkonan unga og hæfileikaríka

Julie Gayet, ástkona Francois Hollande Frakklandsforseta, er afkastamikil leikkona sem hefur leikið í um sjötíu kvikmyndum. Upp komst um framhjáhald forsetans í byrjun janúar og í gær tilkynnti hann sambandsslit sín við sambýliskonu sína til margra ára, Valerie Trierweiler. Engar fréttir hafa borist af því hvort samband þeirra Gayet og Hollande standi enn. Komið hefur fram að líklega hafi þau byrjað að vera saman áður en hann var kosinn forseti árið 2012. 

Ástkonan unga og hæfileikaríka

Hollande og ástarmálin | 26. janúar 2014

Francois Hollande og leikkonan Julie Gayet.
Francois Hollande og leikkonan Julie Gayet. EPA

Julie Gayet, ástkona Francois Hollande Frakklandsforseta, er afkastamikil leikkona sem hefur leikið í um sjötíu kvikmyndum. Upp komst um framhjáhald forsetans í byrjun janúar og í gær tilkynnti hann sambandsslit sín við sambýliskonu sína til margra ára, Valerie Trierweiler. Engar fréttir hafa borist af því hvort samband þeirra Gayet og Hollande standi enn. Komið hefur fram að líklega hafi þau byrjað að vera saman áður en hann var kosinn forseti árið 2012. 

Julie Gayet, ástkona Francois Hollande Frakklandsforseta, er afkastamikil leikkona sem hefur leikið í um sjötíu kvikmyndum. Upp komst um framhjáhald forsetans í byrjun janúar og í gær tilkynnti hann sambandsslit sín við sambýliskonu sína til margra ára, Valerie Trierweiler. Engar fréttir hafa borist af því hvort samband þeirra Gayet og Hollande standi enn. Komið hefur fram að líklega hafi þau byrjað að vera saman áður en hann var kosinn forseti árið 2012. 

Hún er grannvaxin, brosmild og með kastaníubrúnt hár. Hin 41 árs gamla Julie Gayet hefur leikið fjölbreytt hlutverk, í rómantískum gamanmyndum sem og í dramatískum myndum og hrollvekjum. 

En allt frá því að upp komst um framhjáhald forsetans hefur hún haldið sig til hlés. Hún hefur þó höfðað mál á hendur tímaritinu Closer sem birti fyrst allra fréttina um ástarsambandið, fyrir brot á friðhelgi einkalífs hennar. Hún fer fram á háar bætur frá blaðinu.

hinn 10. janúar birti Closer grein um að Hollande, sem er 59 ára, ætti oft ástarfundi með Gayet í íbúð í nágrenni forsetahallarinnar í París. Meðal annars kom fram að lífvörður hans færði þeim skötuhjúum brauðhorn á morgnana.

Hollande hafði ekki tjáð sig um málið fyrr en í gær er hann loks tilkynnti að hann og Trierweiler væru skilin.

Trierweiler brá svo við fréttirnar um framhjáhaldið að hún var lögð inn á sjúkrahús í viku.

Hollande hefur þekkt Gayet að minnsta kosti frá árinu 2012 en þá tók hún þátt í kosningabaráttu hans. Hún kom m.a. fram í auglýsingu þar sem hún lýsti Hollande sem „auðmjúkum“ og „frábærum“ manni.

Gayet er þekkt fyrir að standa á sínu og nýverið studdi hún opinberlega hjónabönd samkynhneigðra í landinu. 

Leikkonan er fædd í Suresnes-hverfinu í París 3. júní árið 1972. Hún nam leiklist og listasögu á yngri árum. Hún var m.a. í starfsnámi hjá Jack Waltzer í Actors Studio í London og lærði einnig söng í París.

Leiklistarferill hennar hófst árið 1993 með hlutverkum í myndunum Little Apocalypse og Blue eftir Krzysztof Kieslowski. En það var hlutverk hennar í gamanmyndinni Delphine 1, Yvan 0, sem kom út árið 1996, sem skaut henni upp á stjörnuhimininn.

Hún fylgdi velgengninni eftir með myndinni Select Hotel í leikstjórn Laurent Bouhnik. Þar fór hún með hlutverk vændiskonu í fíkniefnaneyslu. Fékk hún hin virtu frönsku kvikmyndaverðlaun, Romy Schneider, fyrir það hlutverk. 

Gayet er þekkt fyrir að vera djörf í hlutverkavali. „Það sem ég kann að meta við þetta fag er að hverfa inn í annan heim,“ sagði hún í viðtali árið 2002.

Árið 2007 stofnaði hún lítið kvikmyndaframleiðslufyrirtæki sem heitir Fix Me. Í fyrra var hún svo aðstoðarleikstjóri heimildarmyndar um kvikmyndagerðarfólk.

Gayet á tvö börn á unglingsaldri með argentínska rithöfundinum og handritshöfundinum Santiago Amigorena.

Forsíða Closer þann 10. janúar.
Forsíða Closer þann 10. janúar. AFP
Francois Hollande og fyrrverandi sambýliskona hans, Valerie Trierweiler.
Francois Hollande og fyrrverandi sambýliskona hans, Valerie Trierweiler. EPA
mbl.is