Erfiðleikar sparisjóðanna við að tryggja sér markaðshlutdeild áttu þátt í þeirri ákvörðun stjórnenda sjóðanna að ráðast í áhættusöm fasteignaviðskipti erlendis.

Þessu er ítarlega lýst í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um sparisjóðina og hvernig sjóðirnir tóku að lána íslenskum verktökum sem stóru bankarnir þrír höfðu neitað um fyrirgreiðslu, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.
Magnús Ægir Magnússon, annar stjórnenda Byrs, sagði í samtali við rannsóknarnefndina að það hefði aðeins verið tímaspursmál hvenær sjóðirnir lentu í vandræðum. Stóru bankarnir hefðu verið „eins og hrægammar um allt og [tekið] öll verkefni sem komu til sögunnar“.