Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, segir að rannsókn í hópnauðgunarmáli miði vel en yfirheyrslur hafa staðið yfir um helgina.

Fimm ungir karlmenn á aldrinum 17-19 ára voru fyrir helgi úrskurðaðir í gæsluvarðhald til fimmtudags. Þeir kærðu úrskurðinn til Hæstaréttar en ekki liggur fyrir niðurstaða Hæstaréttar.
Piltarnir fimm eru grunaðir um að hafa nauðgað sextán ára stúlku í samkvæmi í Breiðholti um þar síðustu helgi. Kæra í málinu var lögð fram síðdegis á miðvikudag og voru þeir handteknir síðar það kvöld.