Tískuhönnuðurinn Tom Ford er í miklu uppáhaldi hjá kvenpeningnum. Það er einhvern veginn sama hvað hann hannar - alltaf langar mann í allt. Reyndar hafa svona venjulegar Guggur eins og ég sjaldnast efni á því sem kappinn hefur fram að færa en það má nota hönnun hans sem innblástur. Sem gerir það að verkum að næst þegar maður fer í Zöru eða Lindex þá veit maður kannski aðeins betur hverju leitað er eftir. Herra Ford keyrir upp retró-glamúrinn sem mér finnst alltaf svo heillandi. Í sumarlínunni fyrir næsta sumar sem hann sýndi á tískuvikunni í Lundúnum eru flest dressin svolítið eins og dömurnar séu að reyna að komast inn á Studio 54, sem var vinsælasti klúbburinn í New York í áraraðir.

Svart, gull og silur er í forgrunni og leður er einnig áberndi. Fötin eru þröng - ekki hólkvíð þannig að við lítum út fyrir að vera í fötum af mæðrum okkar!
Sjálfur sló hann öll vopn út úr höndunum á tískuelítunni þegar hann mætti sjálfur í gallabuxum við gallaskyrtu. Í öllum helstu tískubiblíum hefur þetta aldrei mátt - að blanda saman gallaefni við gallaefni. En þarna sýnir hann og sannar að þetta er bara nokkuð töff. Fyrst hann er svona þá hlýtur það að vera málið ...