Margrét Guðmundsdóttir, Ari Bergmann Einarsson og Guðmundur Örn Hauksson neituðu sök þegar SPRON-málið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Rannveig Rist og Jóhann Ásgeir Baldurs voru ekki viðstödd þingfestinguna.

Sérstakur saksóknari ákærði Guðmund, Ara, Jóhann, Margréti og Rannveigu fyrir að hafa, sem forstjóri eða stjórnarmenn í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum og stefnt fé hans verulega í hættu, með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga þegar félagið lánaði Exista tveggja milljarða lán, án trygginga.
Í málinu er ákært fyrir umboðssvik. Rannveig Rist og Jóhann Ásgeir mættu ekki við þingfestinguna, og tóku því ekki afstöðu til ákærunnar. 1.289 blaðsíður og 15 tölvudiskar liggja fyrir í málinu. Þinghald í málinu var ákveðið 29. október.
Lánið þykir mjög óvenjulegt, en það var eina lánið sem stjórn sjóðsins samþykkti á árunum 2007 og 2008. Lánið var ekki greitt til baka og verður að telja að fullu eða verulegu glatað fyrir sparisjóðinn. Ákæruvaldið krafðist refsingar og að sakborningar greiði sakarkostnað.
Aðdragandi lánveitingar þeirrar sem sérstakur saksóknari ákærði fyrir í SPRON-málinu var sá að 18. september 2008 veitti vátryggingafélagið VÍS fjögurra milljarða króna peningamarkaðslán til Exista. Það var framlengt til 22. september, aftur til 29. september og að lokum til 30. september en þá greiddi Exista lánið til baka, að hálfu með láninu frá SPRON og fyrir það er ákært.
Áður en SPRON lánaði Exista tvo milljarða fékk sparisjóðurinn peningamarkaðslán frá VÍS upp á sömu upphæð. Þeir fjármunir sem VÍS lánaði SPRON voru því notaðir til að fjármagna lánið til Exista. „Var staðan eftir þennan snúning sú að áhætta VÍS gagnvart Existu minnkaði um tvo milljarða, en í staðinn hafði SPRON veitt Existu tryggingalaust lán að sömu fjárhæð. Var áhættunni af tveggja milljarða króna láni til Existu þannig velt af VÍS og yfir á SPRON, sem síðar sat uppi með fullt tjón vegna lánsins.“