Hafþór í járnhásætinu

Game of Thrones | 20. október 2014

Hafþór í járnhásætinu

Hafþór Júlíus Björnsson lætur fara vel um sig í hinu ógnvænlega járnhásæti Game of Thrones þáttanna (e. the iron throne) á ljósmynd sem hann birti á Facebook síðu sinni í gær.

Hafþór í járnhásætinu

Game of Thrones | 20. október 2014

Hafþór lætur fara vel um sig í járnhásætinu.
Hafþór lætur fara vel um sig í járnhásætinu.

Hafþór Júlíus Björnsson lætur fara vel um sig í hinu ógnvænlega járnhásæti Game of Thrones þáttanna (e. the iron throne) á ljósmynd sem hann birti á Facebook síðu sinni í gær.

Hafþór Júlíus Björnsson lætur fara vel um sig í hinu ógnvænlega járnhásæti Game of Thrones þáttanna (e. the iron throne) á ljósmynd sem hann birti á Facebook síðu sinni í gær.

Hásætið er gríðarstórt og er seint hægt að segja að það passi flestum þeim persónum sem í það hafa sest í þáttunum. Eins og margir hafa haft á orði í athugasemdum við myndina lætur Hafþór það hinsvegar líta út eins og hægindastól. 

Ekki er ólíklegt að Hafþór sé við tökur á þáttunum þessa dagana en í fyrradag birti hann þessa mynd af sér í salerni flugvélar á vegum Icelandair en aðstaðan var víst ekki jafn þægileg fyrir vöðvatröllið og járnhásætið.

mbl.is