„Nei, ég borgaði ekkert,“ sagði Ingunn Wernersdóttir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegið í dag þegar saksóknari spurði hana út í 600 milljón króna víkjandi lán sem hún veitti Sjóvá - Almennum tryggingum á árinu 2006. Hún staðfesti þar með að hafa ekki látið Sjóvá fá krónu af láninu.
„Nei, ég borgaði ekkert,“ sagði Ingunn Wernersdóttir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegið í dag þegar saksóknari spurði hana út í 600 milljón króna víkjandi lán sem hún veitti Sjóvá - Almennum tryggingum á árinu 2006. Hún staðfesti þar með að hafa ekki látið Sjóvá fá krónu af láninu.
„Nei, ég borgaði ekkert,“ sagði Ingunn Wernersdóttir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegið í dag þegar saksóknari spurði hana út í 600 milljón króna víkjandi lán sem hún veitti Sjóvá - Almennum tryggingum á árinu 2006. Hún staðfesti þar með að hafa ekki látið Sjóvá fá krónu af láninu.
Í málinu eru Guðmundur Ólason, fv. forstjóri Milestone, Karl Wernersson, fv. stjórnarformaður, og Steingrímur Wernerson, fv. stjórnarmaður, ákærðir vegna greiðslna til Ingunnar Wernersdóttur fyrir hluti hennar í Milestone, Milestone Import Export og Leiftra en þær námu á sjötta milljarð króna á árunum 2006 og 2007.
Jafnframt eru endurskoðendurnir Hrafnhildur Fanngeirsdóttir, Margrét Guðjónsdóttir og Sigurþór Charles Guðmundsson, öll frá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG, ákærð fyrir brot gegn lögum um endurskoðendur. Þau Margrét og Sigurþór eru ennfremur ákærð fyrir meiriháttar brot á lögum um ársreikninga vegna viðskiptanna.
Meðal þess sem greinir frá í ákæru er að það hafi verið látið líta svo út að Sjóvá hefði tekið víkjandi lán hjá Ingunni, sem Sjóvá skyldi endurgreiða með vöxtum. „Karl kom til mín og spurði hvort ég gæti lánað þeim sex hundruð milljónir og ég sá ekkert því til fyrirstöðu. Þetta var útfært á þann hátt að ég átti víkjandi samning á Sjóvá. Sjóvá borgaði mér vexti og ég fékk greiðslur frá Sjóvá ábyggilega í rúmt ár.“
Saksóknari: „Greiddir þú sex hundruð milljónir til Sjóvá?“
Ingunn: „Nei, ég borgaði ekkert. Ég var bara beðin um að gera hlé á greiðslum upp á sex hundruð milljónir. Þetta var bara þeirra mál að útfæra.
Saksóknari: „Höfðu þessir samningar áhrif á greiðslurnar [fyrir hlutina í Milestone] til þín?
Ingunn: „Já, það voru sex hundruð milljónir sem fóru í gegnum Sjóvá eða hvernig sem það var gert. Ég fékk enga peninga. Þetta var skrifað sem víkjandi lán sem Sjóvá skuldaði mér og þeir skulda mér þetta ennþá. Ég hef ekkert fengið þetta greitt.“
Skýrt hefur verið frá því að þegar líða tók á árið 2006 hafi Milestone lent í vandræðum með að greiða Ingunni á réttum tíma vegna fjárhagsvandræða. Í gær kom fram að greiðslubyrðin hefði verið minnkuð með því að greiða Ingunni ekki 150 milljónir í fjóra mánuði, eða sex hundruð þúsund. Í ákæru segir að í stað þess hafi verið látið líta svo út að Sjóvá hefði tekið 600 milljón króna víkjandi lán hjá Ingunni. Í bókhaldi Sjóvár var svo í kjölfarið færð krafa á hendur Milestone, móðurfélagi Sjóvá, upp á sömu upphæð.
Ingunn sagðist hafa setið í stjórn Milestone áður en hún seldi hluti sína en að hún hafi ósköp annað lítið gert innan félagsins. Þrátt fyrir að hún hafi verið skráð sem stjórnarformaður á árinu 2005 hafi hún ekki verið starfandi stjórnarformaður. Hún hafi svo seint á árinu ákveðið að draga sig út úr félaginu. „Ég vildi selja mig út, og við gerðum samning. Þetta byrjaði í nóvember og skrifað var undir samning 5. desember 2005. Þa´var ég að selja allan minn hlut, þeir [Karl og Steingrímur] höfðu forkaupsrétt og ákváðu að nýta hann. Svo var dreginn upp samningur og borgað eftir honum.“
Aðspurð sagðist Ingunn ekki vilja gefa upp hvers vegna hún seldi hluti sína í Milestone, bar við að það persónulegar ástæður lægju að baki.
Uppfært klukkan 15.52:
Verjandi eins sakborninga í málínu vill árétta eftirfarandi:
„Ingunn eignaðist kröfu á Sjóvá-Almennar samkvæmt víkjandi lánasamningum að fjárhæð kr. 600 milljónir. Þetta fékk hún í staðinn fyrir 600 mkr. greiðslu samkvæmt samningunum við bræður sina. Milestone ehf. greiddi Sjóvá þessa peninga sem IW hefði annars fengið, ef hún hefði ekki samþykkt að lána Sjóvá þessa peninga. Skjöl málsins eru alveg skýr um þetta.“