Hægt að staðfesta lækkunina á morgun

Hægt að staðfesta lækkunina á morgun

Hægt verður að samþykkja lækkun höfuðstóls íbúðalána vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar frá og með morgundeginum. Þetta segir Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnastjóri höfuðstólslækkunarinnar, í samtali við mbl.is. Sendur verður tölvupóstur á þá sem rétt eiga á leiðréttingu þegar opnað verður fyrir staðfestinguna.

Hægt að staðfesta lækkunina á morgun

Skuldaleiðréttingar ríkisstjórnarinnar | 22. desember 2014

Tryggvi Þór Herbertsson.
Tryggvi Þór Herbertsson. mbl.is/Kristinn

Hægt verður að samþykkja lækkun höfuðstóls íbúðalána vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar frá og með morgundeginum. Þetta segir Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnastjóri höfuðstólslækkunarinnar, í samtali við mbl.is. Sendur verður tölvupóstur á þá sem rétt eiga á leiðréttingu þegar opnað verður fyrir staðfestinguna.

Hægt verður að samþykkja lækkun höfuðstóls íbúðalána vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar frá og með morgundeginum. Þetta segir Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnastjóri höfuðstólslækkunarinnar, í samtali við mbl.is. Sendur verður tölvupóstur á þá sem rétt eiga á leiðréttingu þegar opnað verður fyrir staðfestinguna.

„Þá sést hvert leiðréttingunni verður ráðstafað og í kjölfarið getur fólk samþykkt táðstöfunina,“ segir hann. Fólk sjái síðan nokkrum dögum síðan hvaða áhrif lækkunin hafi í heimabankanum sínum eða inni á vefsíðunni Leiðrétting.is. „Svo á næsta greiðsluseðli eftir að búið er að færa þetta inn sér það hvernig greiðslubyrðin lækkar.“

mbl.is