Tónlistarmaðurinn Bobby Brown opnaði sig nýverið í þættinum Access Hollywood um stormasamt hjónaband sitt og Whitney Houston. Hann greindi frá því að þau Houston hefðu bæði stundað framhjáhald á meðan þau voru gift.

„Við héldum hvort framhjá öðru, punktur. Því var erfitt að kyngja,“ útskýrði Brown. Hann sagði að um mannleg mistök væri að ræða. Hann útskýrði þá hvernig þau Houston hefðu fjarlægst og þá stigið feilspor í sambandinu. „Fólk gerir mistök, við erum mannleg.“
Í viðtalinu fjallar hann einnig um eiturlyfjanotkun þeirra hjóna og hvernig hann áttaði sig á því í brúðkaupsferðinni að Houston notaði kókaín.
Houston lést árið 2012, fimm árum eftir að hún skildi við Brown.