Senn lýkur athugun á hópnauðgun

Senn lýkur athugun á hópnauðgun

Athugun ríkissaksóknara á hópnauðgun sem kærð var í maí á síðasta ári er á lokastigum. Lögregla lauk rannsókn á málinu í lok júní á síðasta ári og fór málið þá til ríkissaksóknara.

Senn lýkur athugun á hópnauðgun

Ákærðir fyrir hópnauðgun | 17. mars 2015

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Athugun ríkissaksóknara á hópnauðgun sem kærð var í maí á síðasta ári er á lokastigum. Lögregla lauk rannsókn á málinu í lok júní á síðasta ári og fór málið þá til ríkissaksóknara.

Athugun ríkissaksóknara á hópnauðgun sem kærð var í maí á síðasta ári er á lokastigum. Lögregla lauk rannsókn á málinu í lok júní á síðasta ári og fór málið þá til ríkissaksóknara.

Fimm piltar á aldrinum 17 til 19 ára sættu gæsluvarðhaldi um tíma vegna málsins en undir ríkissaksóknara er komið hvort gefin verður út ákæra á hendur þeim öllum. 16 ára stúlka lagði fram kæru á hendur piltunum þann 7. maí á síðasta ári. Piltarnir voru handteknir samdægurs og sátu í gæsluvarðhaldi í eina viku.

Rannsókn málsins hefur verið umfangsmikil, m.a. var lögð fram myndbandsupptaka sem tekin var á síma eins piltanna. Þá voru teknar skýrslur af fjölda fólks, en hópnauðgunin mun hafa átt sér stað í samkvæmi í Breiðholti.

mbl.is