Playboy fyrirsætan Arna Bára Karlsdóttir á von á barni með unnusta sínum Heiðari Árnasyni. Barnið er væntanlegt í október.
„Þetta leggst æðislega í mig og við hlökkum rosalega mikið til,“ segir Arna Bára Karlsdóttir hárgeiðslumeistari á Fönix og Playboy fyrirsæta sem á von á barni í október með unnusta sínum Heiðari Árnasyni. Arna Bára er sett 25. október. Fyrir á Arna Bára soninn Tristan sem er 3 ára.
Arna Bára segist ekki vera búin að leggja fyrirsætuferilinn á hilluna þótt hún eigi von á barni.
„Ég er með fullt af tilboðum núna sem ég neyðist til að neita vegna ástands. Ég er alls ekki að leggja fyrirsætuferilinn á hilluna. Kem bara sterkari og flottari aftur á næsta ári.“
Sónarmyndin sem Arna Bára Karlsdóttir póstaði á Facebook.