Greinargerð yfirstjórnar Seðlabanka Íslands um bréf umboðsmanns Alþingis sem varðar m.a. gjaldeyriseftirlit, undanþágubeiðnir og gjaldeyrisrannsóknir liggur fyrir í drögum og unnið er að endanlegri útgáfu.

Bankaráð óskaði eftir umsögn yfirstjórnar um bréfið í lok október og átti hún að liggja fyrir eigi síðar en 10. desember. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands lágu drögin fyrir á þessum tíma en endanleg útgáfa er ekki tilbúin. Ekki er því hægt að veita frekari upplýsingar um greinargerðina að svo stöddu.
Frétt mbl.is: Vill umsögn yfirstjórnar bankans
Í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér í lok október kom fram að bankaráðið telji „að bréfið gefi ráðinu tilefni til að láta gera óháða úttekt, með hliðsjón af gildandi lögum og reglum á hverjum tíma, á stjórnsýslu Seðlabankans við framkvæmd gjaldeyriseftirlits, undanþágubeiðna og gjaldeyrisrannsókna.“
Tilgangur úttektarinnar verði meðal annars að skoða hvort ástæða sé til „að skýra æskilegt verksvið og lagaheimildir bankans á þessum sviðum og settar fram tillögur til úrbóta eftir því sem þörf krefur.“