Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er kominn á hið vinsæla samskiptaforrit Snapchat. Það er hin mesta skemmtun að vera vinur hans á „snappinu“.

Sigmundur Davíð byrjaði á Snapchat um áramótin og síðan undirrituð vingaðist við hann á Snapchat hefur hann sýnt á sér öðruvísi hliðar. Hann fór til dæmis á KFC í gær, horfði á Ófærð og var í töluverðum vandræðum með að velja á milli Dalalífs og Sódómu, en planið var að horfa á aðra hvora myndina.
Ekki vitum við hvor myndin varð fyrir valinu en í morgun hélt stemningin áfram þegar Sigmundur Davíð var búinn að spotta kg af lakkrís inni á skrifstofu aðstoðarmanns síns, Jóhannesar Þórs Skúlasonar. Í snappinu virtist Sigmundur Davíð hissa því hann hélt að Jóhannes Þór ætlaði að hætta í namminu á nýja árinu.
Eins og Smartland Mörtu Maríu hefur áður greint frá eru Sigmundur Davíð og Jóhannes Þór oft að reyna að lifa heilsusamlegra lífi. Haustið 2014 voru þeir til dæmis saman í einkaþjálfun hjá Evert Víglundssyni Biggest Loser þjálfara og svo hefur Jóhannes Þór bloggað um heilsufar sitt og bætingar á því sviðinu.
Undirrituð bíður því spennt eftir næsta snappi - verður lakkríspokinn opnaður eða ekki. Það er stóra spurningin.
Snapchat forsætisráðherra er: sigmundurdavid