Kvikmyndin Spotlight, sem fjallar um rannsókn blaðamanna The Boston Globe á barnaníði innan kaþólsku kirkjunnar, hlaut óvænt verðlaun fyrir bestu myndina á Óskarshátíðinni í gær.

Kvikmyndin bar þannig sigurorð af keppinautum sínum, The Big Short, Bridge of Spies, Brooklyn, Mad Max: Fury Road, The Martian, Room og The Revenant.
Í þakkarræðu sinni sagðist Michael Sugar, framleiðandi myndarinnar, vona að hún myndi senda sterk skilaboð til Vatíkansins, en meðferð þess á þolendum kynferðisofbeldis af hálfu presta var gagnrýnd harðlega í myndinni.
„Þessi mynd gaf eftirlifendum rödd. Og þessi Óskar magnar styrk raddarinnar, sem við vonum að verði að kór sem muni svo enduróma alla leið til Vatíkansins,“ sagði Sugar. „Frans páfi, það er tími til kominn að vernda börnin og endurreisa trúna á ný.“