Fjármálaeftirlitið (FME) hefur kært til héraðssaksóknara, að Morgunblaðið hafi búið yfir upplýsingum í mars í fyrra, um að Borgun hafi tekið út rúmlega 200 milljónir króna af reikningi sínum í Sparisjóði Vestmannaeyja, og birt frétt þessa efnis í Morgunblaðinu þann 31. mars 2015.

Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður á viðskiptadeild Morgunblaðsins, skrifaði fréttina sem var undir fyrirsögninni „700 milljónir teknar út úr Sparisjóði Vestmannaeyja“ og undirfyrirsögn fréttarinnar var: „Dótturfélag Íslandsbanka tók út rúmar 200 millljónir í áhlaupinu fyrir helgi.“
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari staðfestir í blaðinu í dag, að embættinu hefði borist kæra frá FME, þar sem FME teldi að um brot á lögum um bankaleynd væri að ræða, að blaðamaður Morgunblaðsins hefði búið yfir ofangreindum upplýsingum um fjárútstreymi úr Sparisjóði Vestmannaeyja í mars í fyrra.