Victoria Beckham er stödd á Íslandi ásamt fjölskyldu sinni. Hún er í heimsókn hjá Björgólfi Thor Björgólfssyni og Kristínu Ólafsdóttur eiginkonu hans. Það eru fáar konur sem hafa verið jafnmikið í fjölmiðlum og frú Beckham enda náði hún einhvern veginn að fara úr því að vera í vinsælustu stelpuhljómsveit heims, Kryddpíunum, sem átti 20 ára afmæli í gær, í það að verða virtur fatahönnuður.

Þegar þekktar konur eru annars vegar viljum við hinar venjulegu guggurnar vita allt. Við viljum vita hvað þær gera við húðina á sér til að halda sér unglegum, hvaða sjampó þær nota, hvaða farða, hvaða maskara, hvaða augnskugga, kinnalit og augnblýant. Og svo viljum við náttúrlega vita hvað þær borða - nú eða borða ekki.
Það er ekki hægt að svara öllum þessum spurningum hér en það hefur þó margoft komið fram að frú Beckham notar Weleda Skin Food-kremið. Um er að ræða mjög gott rakakrem sem nærir húðina og viðheldur ferskleika hennar. Kremið er á frekar góðu verði en það kostar um 2400 kr.
Weleda Skin Food-kremið gefur mjög vel þegar húðin þarf þetta „auka“. Það er líka gott á hendurnar, fæturna, á þurrkbletti, exem og útbrot.
Frú Beckham er ekki eina þekkta konan sem hefur notað kremið því Adele notar það og líka Júlia Roberts, hönnuðurinn Tory Burch og Rihanna.